Haunted Walk´s in the PRESS!

Interesting, informative, pleasant
"The
tour was interesting, informative, pleasant, revealing and above all, very,
very
weird, some-times even simultaneously combining all five elements."
Sindri Eldon, Reykjavik Grapevine , Issue 8 2006.
More reading

Enviormental Elves!
Entertaining, Animated and eccentric.
Whether you actually believe in ghost and elves or not isn´t really
important.
More reading.

Stroke of A genius!
Given Icelandic folklore and the trend towards
haunted tours in other cities, it is surprising that no one had thought of
this idea before Jónas Thorsteinsson created them this year.
More reading.
Es
spukt in Reykjavik!
Geschichten zu erzählen liegt den Isländern im Blut sowie die Faszination
des Geheimnisvollen und der Glaube an etwas Übernatürlichem.
(more)
Good Morning America beint frá Jökulsárlóni
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
dveljast útsendarar frá hinum feikivinsæla morgunþætti ABC-sjónvarpsstöðvarinnar,
Good Morning America, hér á landi þessa dagana í því skyni að undirbúa beina
útsendingu frá Jökulsárlóni sem fara mun fram í nóvember.
Útsendingin frá Íslandi verður liður í vikulöngu ferðalagi þáttarins, en
hann mun verða sendur út frá sex öðrum löndum í sömu viku. Á Íslandi ætla
þáttastjórnendur að fjalla um gróðurhúsaáhrifin og hnattræna hitun.
Tökuliðið sem statt er hér um þessar mundir sér um rannsóknarvinnu fyrir
þáttinn, en þeirra á meðal er Morgan Zalkin sem hefur yfirumsjón með
framleiðslu sérstakra innslaga fyrir Good Morning America. Það verður hins
vegar væntanlega Sam Champion, veðurfræðingur þáttarins, sem verður
aðalandlitið í beinu útsendingunni í nóvember.
Heimildir Fréttablaðsins herma að tökuliðið frá Good Morning America hafi
varið miðvikudeginum í viðræður við íslenska vísindamenn. Um kvöldið skelltu
þau sér hins vegar í draugagöngu um miðbæinn, en þær virðast njóta mikilla
vinsælda. Áhugi Jónasar Freydal Þorsteinssonar, umsjónarmanns göngunnar, á
umhverfismálum virtist vekja athygli tökuliðsins, en í göngunum les hann
meðal annars ákall frá álfum þess efnis að landið sé varðveitt. Tökuliðið ku
þó hafa verið á höttunum eftir skemmtilegu efni til að krydda útsendinguna
með, og alls óvíst hvort efni úr draugagöngunni yrði notað.
Good Morning America hefur áður verið með beina útsendingu frá Íslandi, en
fyrir níu árum var þátturinn sendur út frá Austurvelli og Bláa lóninu. Um
fimm milljónir manna horfa á þáttinn á degi hverjum og er því um umtalsverða
landkynningu að ræða. Hvort hún verður góð eða slæm er þó enn óljóst.

Jónas Freydal
Jónas Freydal
|